Viðskiptaráð styður afnám einokunar á smásölu áfengis

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn vegna breytinga á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Með tillögunni er lagt til að lögum um verslun með áfengi og tóbak verði breytt þannig að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) á smásölu áfengis verði aflagt og smásala áfengis verði að ákveðnu marki frjáls. Viðskiptaráð leggur til að frumvarpið nái fram að ganga.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur eftirfarandi fram:

  • Einokun ríkir á smásölu með áfengi þrátt fyrir að um atvinnurekstur sé að ræða. Afleiðingin er sú að kraftar samkeppni leiða ekki til aukinnar hagkvæmni í rekstri. Því má telja að afnám einkaleyfis á sölu áfengis muni leiða til bættrar þjónustu og lægra vöruverðs fyrir neytendur.
  • Helstu rökin fyrir einokun á smásölu með áfengi byggjast á sjónarmiðum um lýðheilsu. Hins vegar telur Viðskiptaráð að árangursríkasta leiðin til að draga úr misnotkun á áfengi sé í gegnum forvarnarstarf, en ekki takmarkanir á frelsi einstaklinga til neyslu þess.
  • Telur ráðið jafnframt að afnám einkaleyfis ÁTVR á smásölu áfengis muni hafa óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs. Vísaði Viðskiptráð í tölur úr ársskýrslu ÁTVR því til stuðnings.

Tengt efni

2/3 af bjórnum renna til ríkisins

Í dag eru liðin 36 ár frá afnámi bjórbannsins á Íslandi. Þrátt fyrir að banninu ...

Afnema ætti ríkiseinokun og auglýsingabann 

Íslensk áfengislöggjöf mismunar innlendum fyrirtækjum samanborið við erlend ...
15. okt 2024

Allt að 43% lægra matvöruverð án tolla

Afnám tolla myndi lækka verð á matvörum um allt að 43%. Þetta kemur fram í nýrri ...
8. ágú 2024