
Nýir og hærri skattar eru lagðir til í bandorminum svokallaða, sem eru lagabreytingar tengdar fjárlögum. Þar er einnig áformað að draga úr stuðningi við rannsóknir og þróun, þvert á yfirlýsingar fráfarandi stjórnvalda.
22. okt 2024

Grunnskólakennurum hefur fjölgað hraðar en nemendum undanfarin ár. Þá er kennsluskylda lítil, veikindi algeng, kennarar margir og kostnaður hár samanborið við önnur ríki. Þetta er niðurstaða nýrrar samantektar Viðskiptaráðs á hagkvæmni íslenskra grunnskóla í alþjóðlegu samhengi.
21. okt 2024

„Í stað innstæðulausra inngripa í kjarasamningagerð á almennum vinnumarkaði ættu stjórnvöld að einbeita sér að því að skila hallalausum fjárlögum.“ Þetta kemur fram í grein sem Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, skrifar.
17. okt 2024

Íslensk áfengislöggjöf mismunar innlendum fyrirtækjum samanborið við erlend fyrirtæki, bæði hvað varðar sölu og auglýsingar á áfengi. Jafna ætti samkeppnisstöðu fyrirtækja á Íslandi með fullu afnámi ríkiseinokunar og auglýsingabanns til samræmis við löggjöf annarra Evrópuríkja. Þetta kemur fram í ...
15. okt 2024

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að missa ekki sjónar á því að hagur neytenda vænkast vegna frjáls framtaks fólks og fyrirtækja með nýjum vörum, þjónustu og nýsköpun – ekki auknum ríkisútgjöldum til eftirlitsstofnana og hagsmunasamtaka.
10. okt 2024

Í fjárlögum 2025 er áformað að reka ríkissjóð með 41 ma. kr. halla, sem væri sjöunda ár hallarekstrar í röð. Að mati Viðskiptaráðs er tímabært að stjórnvöld loki fjárlagagatinu. Ráðið leggur fram níu hagræðingartillögur sem bæta afkomu ríkissjóðs um 44,6 ma. kr. og leiða til 3,6 ma. kr. afgangs í ...
8. okt 2024

Viðskiptaráð ítrekar þá afstöðu sína að lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, jafnan nefnd rammaáætlun, þjóni ekki markmiðum sínum.
30. sep 2024

Fjárlagafrumvarp ársins 2025 var lagt fram á dögunum. Samkvæmt því verða útgjöld ríkissjóðs 1.489 milljarðar króna á næsta ári og aukast um 5,8% á milli ára. Útgjaldavöxturinn er þó misjafn eftir ráðuneytum og málaflokkum. Þá vega verkefni misjafnlega þungt í ríkisrekstrinum.
27. sep 2024

Því hefur verið haldið fram að Viðskiptaráð sé á móti því að ráðist verði í loftslagsaðgerðirnar 150. Það er ekki rétt. Viðskiptaráð hefur hvergi tekið afstöðu til þess hvort ráðast eigi í aðgerðirnar. Ráðið lagði mat á efnahagsleg áhrif þeirra, en það mat var ekki framkvæmt í aðgerðaráætluninni ...
25. sep 2024

Viðskiptaráð hefur metið efnahagsleg áhrif 150 loftslagsaðgerða stjórnvalda. Úttektin leiðir í ljós að tvær af hverjum þremur aðgerðum hafa neikvæð efnahagsleg áhrif. Ráðið hvetur stjórnvöld til að endurskoða núverandi nálgun og meta kostnað loftslagsaðgerða áður en lengra er haldið.
18. sep 2024

Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur lagt fram fyrsta frumvarpið sem felur í sér afhúðun. Nái frumvarpið fram að ganga mun það létta á reglubyrði hér á landi.
17. sep 2024

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. september. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, tók sæti í stjórn skólans. Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, tók sæti í háskólaráði.
13. sep 2024

Þótt veðmálastarfsemi sé sniðinn þröngur stakkur hérlendis veðja fáar þjóðir jafn mikið og Íslendingar. Takmarkanir stjórnvalda hafa valdið því að stór og hratt vaxandi hluti þessara veðmála fer fram utan landsteinanna. Viðskiptaráð leggur til að veðmál verði leyfð hérlendis með upptöku starfsleyfa ...
12. sep 2024

Ný tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærnireikningsskil mun hafa áhrif á flestöll fyrirtæki á Íslandi. Það er vegna nýrrar kröfu um að upplýsingaskylda nái til virðiskeðju þeirra fyrirtækja sem falla undir hana.
10. sep 2024

Ekki er þörf á fleiri starfshópum eða skýrslum til að greina augljósa galla við framkvæmd heilbrigðiseftirlits. Tími er kominn til að taka ákvörðun og einfalda kerfið. Viðskiptaráð leggur til að heilbrigðisumdæmum verði fækkað úr níu í eitt.
4. sep 2024

Ný frumvarpsdrög mennta- og barnamálaráðuneytisins um námsmat fela í sér þríþættar framfarir. Samræmd próf verða nú skyldubundin í grunnfögum, niðurstöður námsmats verða birtar og innleiðingu verður flýtt. Alvarlegur annmarki er þó til staðar: Skólaeinkunnir á áfram að nota við inntöku í ...
3. sep 2024

Viðskiptaráð leggur fram tíu tillögur sem lækka kostnað vegna eftirlits án þess að minnka ávinninginn. Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, svarar gagnrýni Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingkonu Samfylkingar.
31. ágú 2024

Opinbert eftirlit stendur samkeppnishæfni Íslands fyrir þrifum. Íþyngjandi útfærslur hafa verið valdar auk þess sem fjöldi og umsvif eftirlitsstofnana eru mikil samanborið við grannríki. Tækifæri eru til að ná markmiðum eftirlits með hagkvæmari hætti. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs á ...
27. ágú 2024

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum á föstudaginn síðastliðinn. Viðurkenningarnar eru veittar árlega, en að þessu sinni voru þær veittar við hátíðlega athöfn á Nauthóli.
26. ágú 2024

"Ísland er ekki lítið land. Ísland er stórasta land í heimi," sagði Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, þegar íslenska landsliðið í handbolta tryggði sér silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking. Ódauðleg setning, ekki síst vegna þess að hún grípur á einlægan hátt vilja okkar til að skara fram úr ...
21. ágú 2024