Svanhildur nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Viðskiptaráð Íslands hefur ráðið Svanhildi Hólm Valsdóttur í starf framkvæmdastjóra.

Viðskiptaráð Íslands hefur ráðið Svanhildi Hólm Valsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Svanhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Síðastliðin ár hefur Svanhildur starfað sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra, með stuttri viðdvöl í forsætisráðuneytinu, en hún vann einnig við fjölmiðla um árabil.

Við erum afar spennt að fá Svanhildi til liðs við okkur. Hún hefur mikla reynslu og þekkingu á efnahags- og viðskiptalífinu sem er dýrmætt á þessum víðsjárverðu tímum. Viðskiptaráð er mikilvæg rödd íslensks atvinnulífs og hjá okkur eru spennandi verkefni framundan, sem Svanhildur mun koma inn í af krafti.“ segir Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs.

Svanhildur hefur störf hjá Viðskiptaráði 1. desember.

Tengt efni

Starfsfólk Viðskiptaráðs heimsótti Washington DC 

Starfsfólk Viðskiptaráðs heimsótti um miðjan maí Washington DC. Í heimsókninni ...

Enn skortir samræmt námsmat við lok grunnskóla

Viðskiptaráð hefur skilað þriðju umsögn sinni um frumvarp mennta- og ...

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi á málefnasviði 

Viðskiptaráð óskar eftir metnaðarfullum lögfræðingi til starfa á málefnasviði. ...