Starfsfólk Viðskiptaráðs heimsótti Washington DC 

Starfsfólk Viðskiptaráðs heimsótti um miðjan maí Washington DC. Í heimsókninni var hugveitan The Heritage Foundation sótt heim þar sem rætt var um tollastefnu Bandaríkjanna og yfirferð á fyrstu mánuðum í stjórnartíð Donald Trump.

Starfsfólk Viðskiptaráðs ásamt mökum og Svanhildi Hólm Valsdóttur, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Fulltrúar The Heritage voru þeir Preston Brashers, Alexander Frei og Andrew Hale.

Um miðjan maí heimsótti starfsfólk Viðskiptaráðs höfuðborg Bandaríkjanna, Washington DC. Í ferðinni var meðal annars hugveitan The Heritage Foundation heimsótt. Þar fengum við góða kynningu á tollastefnu Bandaríkjaforseta og yfirferð á fyrstu mánuðum í stjórnartíð Donald Trump. Með í för var sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Svanhildur Hólm Valsdóttir, sem var áður framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. 

Heritage-hugveitan hefur sögulega verið talin meðal áhrifamestu hugveita heims og haft áhrif á raunverulega stefnumótun, fjölmiðla og stjórnmálaumræðu í Bandaríkjunum. Þinghúsið í Washington var einnig heimsótt og þótti ferðin takast í alla staði mjög vel. 

Tengt efni

Vilhjálmur Egilsson áritaði nýja bók

Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og ...

Hallalaus fjárlög: Níu hagræðingartillögur Viðskiptaráðs

Í fjárlögum 2025 er áformað að reka ríkissjóð með 41 ma. kr. halla, sem væri ...
8. okt 2024

Ávarp Ara Fenger á Viðskiptaþingi

Ari Fenger flutti opnunarávarp á Viðskiptaþingi 2024. Þetta var hans síðasta ...
12. feb 2024