Óskalisti atvinnulífsins - Kosningafundur Viðskiptaráðs

Kosningafundur Viðskiptaráðs fór fram í morgun og bar yfirskriftina Óskalisti atvinnulífsins. Var sérstök áhersla lögð á samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og framtíðarsýn flokkanna í þeim efnum. Allir frambjóðendur, með 4% eða meira í könnunum og/eða sitjandi á þingi, fengu tækifæri til að svara því hvernig þeir komi til með að tryggja sterkt atvinnulíf hér á landi. Mun Viðskiptaráð vinna úr þeim upplýsingum í kjölfarið. Á fundinum var farið yfir niðurstöður könnunar um hvað brynni mest á atvinnulífinu um þessar mundir og í aðdraganda kosninga, sem og niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir frambjóðendur. Fundarstjóri var fjölmiðlamaðurinn Kristján Kristjánsson.

Hér má sjá myndir frá morgunverðarfundinum

Tengt efni

Sjáðu upptöku frá Kosningafundi Viðskiptaráðs

Kosningafundur Viðskiptaráðs fór fram í Hörpu í dag, miðvikudaginn 13. nóvember. ...

Líflegar umræður á Kosningafundi Viðskiptaráðs 

Viðskiptaráð efndi til kosningafundar sem fram fór í dag í Hörpu. Líflegar ...

Kosningafundur 2024

Kosningafundur Viðskiptaráðs verður haldinn í Hörpu miðvikudaginn 13. nóvember ...
13. nóv 2024