Líflegar umræður á Kosningafundi Viðskiptaráðs 

Viðskiptaráð efndi til kosningafundar sem fram fór í dag í Hörpu. Líflegar umræður sköpuðust á fundinum en forystufólk stjórnmálaflokkanna ræddi þar um fjölbreytt málefni. Kynntur var til leiks kosningaáttaviti Viðskiptaráðs, sem staðsetur stjórnmálaflokka út frá afstöðu þeirra í efnahagsmálum. 

Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var umræðustjóri. 

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp. Í máli hans kom fram að markmið fundarins væri að varpa ljósi á stefnu framboðanna í efnahagsmálum. „Við þreytumst ekki á að minna á að verðmætin verða til með frjálsu framtaki fólks og fyrirtækja. Þessi verðmæti leiða síðan af sér nýjar skatttekjur, fjármagnstekjur og launatekjur. Hagfellt umhverfi af hálfu stjórnvalda leikur þar lykilhlutverk,“ sagði Andri í ávarpi sínu. 

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp. 

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kynnti til leiks Kosningaáttavita Viðskiptaráðs. Kosningaáttavitin er afrakstur spurningakönnunar sem send var öllum stjórnmálaframboðum í aðdraganda fundarins um er að ræða 60 spurningar sem kannar afstöðu stjórnmálaflokka á fjórum málefnasviðum; rekstrarumhverfi, opinber umgjörð, rekstur ríkisins og undirstöðurnar. Kosningaáttavitinn mæli efnahagslegt frelsi og skýrleika í stefnu flokka. 

Nánar um Kosningaáttavita Viðskiptaráðs 

Gunnar Úlfarsson kynnti Kosningaáttavita Viðskiptaráðs. 

Líflegar umræður sköpuðust í pallborði sem að þessu sinni voru tvískiptar. Í fyrri hlutanum tóku þátt þau Gísli Rafn Ólafsson frá Pírötum, Ragnar Þór Ingólfsson frá Flokki fólksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna. 

Í seinni hlutanum voru fulltrúar þeirra fjögurra stjórnmálaflokka sem hafa mælst með mest fylgi í nýlegum skoðanakönnunum. Þar mættu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Páll Jóhannsson frá Samfylkingu, Sigríður Á. Andersen frá Miðflokki og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. 

Hér vantar að setja mynd

Fundurinn var sýndur í beinu streymi og má sjá upptöku frá fundinum hér að neðan.

Tengt efni

Verðbólga afleiðing mikils launaþrýstings 

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að verðbólgan á Íslandi sé frábrugðin ...

Nemendur í Verzló heimsóttu Viðskiptaráð

Hópur nemenda við Verzlunarskóla Íslands kom í heimsókn til Viðskiptaráðs í gær. ...

Þörf á skýrari reglum um þróun útgjalda, lækkun skulda og skattheimtu

Viðskiptaráð hefur ásamt Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins tekið ...