Nemendur í Verzló heimsóttu Viðskiptaráð

Hópur nemenda við Verzlunarskóla Íslands kom í heimsókn til Viðskiptaráðs í gær. Þar fengu nemendurnir kynningu á ráðinu frá Birni Brynjúlfi Björnssyni, framkvæmdastjóra, og Gunnari Úlfarssyni, hagfræðingi ráðsins.  

Mynd 1: Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands. Mynd 2: nemendur við Verzlunarskólann. Mynd 3: Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Nemendurnir eru í valáfanga sem heitir Peningarnir sigra heiminn eftir samnefndri bók Niall Ferguson, en í henni er m.a. fjallað um það hvernig fjármál koma við sögu í helstu atburðum mannkynssögunnar.

Þeir fengu kynningu á sögu Viðskiptaráðs, hlutverki þess og daglegri starfsemi auk málefnastarfs þess undanfarið. Skemmtilegar og líflegar umræður sköpuðust, bæði um menntamál og námsmat í grunnskólum og einnig um umgjörð veðmálastarfsemi hérlendis.  

Ljóst er að þarna eru á ferðinni nemendur sem eiga framtíðina fyrir sér og þakkar Viðskiptaráð þeim fyrir komuna. Ráðið vill jafnframt koma á framfæri þökkum til Björns Jóns Bragasonar, kennara áfangans, fyrir að eiga frumkvæði að því að skipuleggja heimsóknina.  

Tengt efni

Viðskiptaráð verðlaunar afburðanámsmenn við útskrift HR

Viðskiptaráð Íslands veitti þremur nemendum úr viðskiptadeild, lagadeild og ...
17. jan 2006

Molnar úr grunnstoðinni

Stolt yfir skjótum viðsnúningi horfir þjóðin nú með samviskubiti á þann ...
16. mar 2018