Vilhjálmur Egilsson áritaði nýja bók

Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og alþingismaður, heimsótti Hús atvinnulífsins í dag til að kynna bók sína sem kom út á dögunum og ber heitið Vegferð til farsældar.

Vilhjálmur Egilsson afhendir Birni Brynjúlfi Björnssyni, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, áritað eintak bókarinnar

Vilhjálmur gegndi stöðu framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs (þá Verslunarráðs) í 17 ár, eða frá 1987 til 2003, og á að baki farsælan feril innan stjórnmálanna. Hann gegndi einnig stöðu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins frá 2006 til 2013 og var rektor Háskólans á Bifröst frá 2013 til 2019.

Í bók sinni fjallar Vilhjálmur um þróun íslensks samfélags undanfarna áratugi og sýn sína á nokkur mikilvæg viðfangsefni sem framundan eru. Vilhjálmur bendir á að íslenskt samfélag sé nú í fremstu röð á mörgum sviðum vegna margvíslegra umbóta sem gerðar voru á tíunda áratug síðustu aldar. Loks ræðir hann þar hvert Ísland stefnir, hvað megi betur fara og hvað beri að leggja áherslu á í vegferð til farsældar.

Vilhjálmur kynnti bókina fyrir starfsfólki í Húsi atvinnulífsins og áritaði hana að kynningu lokinni. Starfsfólk Viðskiptaráðs þakkar Vilhjálmi innilega fyrir innlitið og mælir heilshugar með lestri bókarinnar. Hún er m.a. fáanleg í vefvefslun Pennans á þessari slóð

Tengt efni

Ferðaskrifborð fært Viðskiptaráði að gjöf 

Jóhann J. Ólafsson, fyrrverandi formaður og núverandi heiðursfélagi ...

Reiðir pennar

Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í skattahagfræði, segir Viðskiptaráð fara ...
15. sep 2022

Hver er þín vinnuvitund?

Viðskiptaráð kynnir nýjan spurningaleik um vinnutíma, kaupmátt og annað sem snýr ...
27. apr 2021