Sýning á íslenskum og erlendum nýjungum

Staðsetning: Ráðhús Reykjavíkur

Hugvit og viðskipti

Viðskiptatækifæri í Ráðhúsi Reykjavíkur 26. og 27. október 2005. 

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra opnar sýninguna fimmtudaginn 26. október kl. 10:00.

Á sýningunni gefst fólki tækifæri á að kynna sér ýmsar nýjungar og mynda viðskiptatengsl.  Sýnendur koma frá Eistlandi, Sviðþjóð, Bretlandi og Íslandi.

Kynnt verður ný íslensk uppfinning og uppfinningamaður ársins fær viðurkenningu.

Gestum gefst tækifæri á að taka þátt í könnun og velja hvaða uppfinningu þeir telja að eigi mesta möguleika á að ná árangri á markaði.

Á fimmtudag, kl. 17:00 verður fræðslufundur í Ráðhúsinu.  Jón Ágúst Þorsteinsson, frumkvöðull Marorku segir frá reynslu sinni og kynning verður á frumkvöðlaumhverfinu í Svíþjóð og Eistlandi. 

Fundarstjóri verður Magnús Orri Scram.

Sýningin er opin frá kl. 09:00-19:00 dagana 26. og 27. október.

 

Tengt efni

Afturför á leigubílamarkaði sem grafi undan samkeppni og atvinnufrelsi

Viðskiptaráð leggst gegn nýju frumvarpi stjórnvalda um breytingar á ...

Ávarp formanns á Viðskiptaþingi

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp ...

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. ...
13. sep 2024