Einkavæðing fjarskiptafyrirtækis

Staðsetning: Grand Hóteli, Hvammi kl. 12:00 - 13.30

Þýsk-íslenska verslunarráðið í samstarfi við Verslunarráð efnir til fundar með Klaus-Dieter Scheurle sem mun fjalla um einkavæðingu á þýska símafyrirtækinu Deutsche Telekom.

Klaus-Dieter Scheurle leiddi einkavæðingu DT og sá um skipulagningu og undirbúning, sem þáverandi framkvæmdastjóri Fjarskiptaeftirlitsins. Stöðu sinnar vegna býr Scheurle yfir víðtækri þekkingu á einkavæðingarferli fjarskiptafyrirtækja. Á fundinum gefst því einstakt tækifæri til að fá innsýn í það viðamikla verkefni sem einkavæðing fjarskiptafyrirtækis er.


Fyrirfram skráning er æskileg og fer fram hjá Þýsk-íslenska verslunarráðinu í síma 510 7100 eða á info@ahk.is. Fundargjald er kr. 2500 (léttur hádegisverður innifalinn).

Tengt efni

Auðlind í augsýn: olíuleit á Drekasvæðinu

Á Drekasvæðinu hefur fundist virkt kolvetniskerfi sem gæti innihaldið olíu í ...

Finnsk-íslenska viðskiptaráðið verður hluti af Millilandaráðunum

Millilandaráðin bjóða Finnsk-íslenska viðskiptaráðið velkomið undir hatt alþjóða ...

Frídagar í klemmu

„Yfirgnæfandi stuðningur hefur verið meðal atvinnurekenda við að færa staka ...