Tekjuskattur og stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki

Viðskiptaráð hefur sent inn umsögn um hækkun þaks á endurgreiðslum vegna kostnaðar sem fellur til vegna rannsókna- og þróunarvinnu (R&Þ) og rýmkunar á heimildum til skattafrádráttar vegna hlutabréfakaupa í nýsköpunarfyrirtækjum. Ráðið telur frumvarpið kærkomið skref í rétta átt en telur að ganga ætti enn lengra. Í því samhengi vill Viðskiptaráð gera eftirfarandi athugasemdir:

  • Viðskiptaráð telur eftirsóknarvert að auka fjárfestingar til rannsókna og þróunar á Íslandi meðal annars þar sem landið er eftirbátur annarra Norðurlanda í þeim efnum
  • Viðskiptaráð fagnar hækkun þaksins en telur nauðsynlegt að hvatar til R&Þ séu efldir enn frekar með markvissum hætti
  • Við fögnum því að skilyrði fyrir nýtingu skattaafsláttar vegna hlutabréfakaupa séu rýmkuð og leggjum til að skoðað verði hvort ganga þurfi lengra í rýmkun skilyrðanna
  • Huga þarf að framlengingu laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki en að óbreyttu renna þau út í lok árs 2019

Lesa umsögn í heild sinni

Tengt efni

Sanngjarnt og einfalt skattkerfi er hagkvæmara

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þreytti frumraun sína á ...

Forskot í opinberum rekstri

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjallar um mikilvægi ...

Ekki tímabært að gera breytingar á stuðningsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja

Gerðar eru viðamiklar breytingar á stuðningsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja í ...