Á hverju ári veitir Viðskiptaráð Íslands umsagnir um tugi lagafrumvarpa og þingsályktunartillagna sem lögð eru fram á Alþingi. Í flestum tilfellum er um að ræða frumvörp sem varða viðskiptalífið með beinum eða óbeinum hætti.
Nýir og hærri skattar eru lagðir til í bandorminum svokallaða, sem eru lagabreytingar tengdar fjárlögum. Þar er einnig áformað að draga úr stuðningi við rannsóknir og þróun, þvert á yfirlýsingar fráfarandi stjórnvalda.
Íslensk áfengislöggjöf mismunar innlendum fyrirtækjum samanborið við erlend fyrirtæki, bæði hvað varðar sölu og auglýsingar á áfengi. Jafna ætti samkeppnisstöðu fyrirtækja á Íslandi með fullu afnámi ríkiseinokunar og auglýsingabanns til samræmis við löggjöf annarra Evrópuríkja. Þetta kemur fram í ...
Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að missa ekki sjónar á því að hagur neytenda vænkast vegna frjáls framtaks fólks og fyrirtækja með nýjum vörum, þjónustu og nýsköpun – ekki auknum ríkisútgjöldum til eftirlitsstofnana og hagsmunasamtaka.
Í fjárlögum 2025 er áformað að reka ríkissjóð með 41 ma. kr. halla, sem væri sjöunda ár hallarekstrar í röð. Að mati Viðskiptaráðs er tímabært að stjórnvöld loki fjárlagagatinu. Ráðið leggur fram níu hagræðingartillögur sem bæta afkomu ríkissjóðs um 44,6 ma. kr. og leiða til 3,6 ma. kr. afgangs í ...
Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur lagt fram fyrsta frumvarpið sem felur í sér afhúðun. Nái frumvarpið fram að ganga mun það létta á reglubyrði hér á landi.
Ný tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærnireikningsskil mun hafa áhrif á flestöll fyrirtæki á Íslandi. Það er vegna nýrrar kröfu um að upplýsingaskylda nái til virðiskeðju þeirra fyrirtækja sem falla undir hana.
Ný frumvarpsdrög mennta- og barnamálaráðuneytisins um námsmat fela í sér þríþættar framfarir. Samræmd próf verða nú skyldubundin í grunnfögum, niðurstöður námsmats verða birtar og innleiðingu verður flýtt. Alvarlegur annmarki er þó til staðar: Skólaeinkunnir á áfram að nota við inntöku í ...
Viðskiptaráð Íslands fagnar áframhaldinu vinnu stjórnvalda við að auka skilvirkari leyfisveitingar á sviði umhverfis- og orkumála á Íslandi með endurhönnun ferla, endurskoðun regluverks, stafrænum lausnum og breyttu verklagi. Ráðið vísar til umsagnar á fyrri stigum og er fylgjandi þeim markmiðum að ...
Misræmi er á milli skólaeinkunna úr íslenskum grunnskólum, en nemendur með sömu einkunnir búa yfir mismikilli færni eftir því úr hvaða skóla þeir koma. Skólaeinkunn ræður tækifærum við val á framhaldsskóla, svo grunnskólabörnum er í dag mismunað eftir búsetu. Þetta kemur fram í nýrri umsögn ...
Að mati Viðskiptaráðs er það hagur innflytjenda og samfélagsins að hæfni og færni nýtist sem best. Mat á menntun leikur þar lykilhlutverk en innflytjendur eru líklegri til að sinna störfum þar sem menntun þeirra og starfsreynsla nýtist ekki þrátt fyrir að menntunarstig þeirra sé sambærilegt við ...
Viðskiptaráð telur brýnt að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra miðla. Ráðið lýsir hins vegar yfir efasemdum um að menningarframlag sé best til þess fallið.
Þingið hefur til umfjöllunar frumvarp til nýrra markaðssetningarlaga sem er ætlað tryggja góða neytendavernd, tryggja bætt samræmi við EES-rétt, auka skýrleika og létta reglubyrði. Viðskiptaráð skilaði umsögn ásamt fleiri samtökum í Húsi atvinnulífsins þar sem útfærslur í frumvarpinu eru gagnrýndar ...
Fjöldi lögverndaðra starfsgreina og starfa á Íslandi er umtalsvert hærri en í öðrum löndum innan Evrópu og OECD. Viðskiptaráð telur þörf á að endurskoða lög um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum og meta þarf hvort þau standist kröfur um málefnalegar takmarkanir ...
Viðskiptaráð Íslands leggur til að frumvarpið verði endurskoðað. Nái frumvarpið fram að ganga munu útgjöld ríkissjóðs til launasjóða listamanna aukast um 70% í skrefum til ársins 2028, úr 977 milljónum í 1.677 milljónir á ári. Í ljósi þess efnahagsástands sem ríkir nú, þ.e. hárrar verðbólgu og ...
Viðskiptaráð Íslands telur markmið frumvarpsins og útfærslu þess til mikilla bóta og væntir þess að það einfaldi skattframkvæmd og styðji við aukna erlenda fjárfestingu hér á landi, samfélaginu öllu til hagsbóta.
Viðskiptaráð Íslands leggur áherslu á að fórnarkostnaðurinn við að veita fjármunum í Þjóðarsjóð sé hár. Hann kemur annars vegar fram í formi hærri skatta og/eða minni ríkisútgjalda. Jafnframt þarf að hafa í huga að ráðstöfun sem þessi, sem mun fela í sér þörf á minni útgjöldum eða hærri sköttum, ...
Viðskiptaráð fagnar vinnu verkefnisteymisins og markmiðum um að einfalda og stytta afgreiðslutíma en um leið tryggja gæði og gagnsæi við leyfisveitingar.
Viðskiptaráð Íslands gerir athugasemdir við að þrátt fyrir að eðli máls samkvæmt kalli margar aðgerðanna á fjármagn er hvergi að finna kostnaðarmat né umfjöllun um fjármögnun þeirra. Þá telur ráðið tillöguna gefa tilefni til að hvetja stjórnvöld til að missa ekki sjónar á því að hagur neytenda felst ...
Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029. Viðskiptaráð telur þörf á frekara aðhaldi í áætlunni, ganga eigi lengra í eignasölu eftir Íslandsbanka til að minnka skuldir ríkissjóðs, og að tímabært sé að endurhugsa húsnæðisstuðning vegna kostnaðar.
Viðskiptaráð Íslands hefur staðfastlega hvatt stjórnvöld til þess að greiða fyrir aukinni orkuframleiðslu. Það má m.a. gera með því að einfalda, skýra og hraða málsmeðferð líkt og bæði Evrópusambandið og nágrannaþjóðir okkar hafa gert. Núverandi takmarkanir hafa hægt á eða komið í veg fyrir aukna ...
Viðskiptaráð Íslands telur breytt frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda styrkveitingarkerfi hins opinbera. Viðskiptaráð fagnar áformum um aukinn stuðning við nýsköpun og grænar lausnir en telur að þeim markmiðum megi ná fram með ...
Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarpið og telur fyrirhugaðar breytingar til mikilla bóta. Viðskiptaráð leggur til að breytingar á virðisaukaskattslögum nái fram að ganga og bindur vonir við að með þeim taki löggjöfin af öll tvímæli um hvenær sala til erlendra aðila sé undanþegin ...
Viðskiptaráð Íslands fagnar áformum um að gengið verði frá sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka sem eru í samræmi við gildandi fjárlög, fjármálaáætlun og stjórnarsáttmála.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að með því sé stigið skref í átt að sameiningu sjóða sem falla undir málefnasvið ráðuneytisins og hvetur til áframhaldandi vinnu á fleiri málefnasviðum í samstarfi við önnur ráðuneyti.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint mál um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Ráðið skilaði umsögn við drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem ráðið fagnaði áherslum í frumvarpinu en gagnrýndi ófullnægjandi mat á hagrænum áhrifum.
Viðskiptaráð Íslands ásamt fleiri samtökum hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu 726. mál.
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands (samtökin) hafa skilað inn umsögn og koma á framfæri athugasemdum um breytingar á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins), mál nr. 787 á 154. löggjafarþingi. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ...
Viðskiptaráð hefur komið á framfæri umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum nr. 36/1994 (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda). Að mati Viðskiptaráðs gengur frumvarpið gegn meginmarkmiðum starfshópsins um að breytingar á húsaleigulögum dragi ekki úr framboði á ...
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um listamannalaun sem miða að því að stofna þrjá nýja launasjóði og fjölga úthlutuðum mánaðarlegum starfslaunum.
Með frumvarpinu er ætlunin að veita lagastoð, skýra og samræma hugtakanotkun um fjarheilbrigðisþjónustu og mismunandi þætti hennar. Viðskiptaráð telur jákvætt að verið sé að veita fjarheilbrigðisþjónustu lagastoð, en veltir því samt sem áður fyrir sér hvers vegna þurfi að greina á milli ...
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar þingsályktunartillögu um fjölmiðlastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Það er mat Viðskiptaráðs að aðgerðaáætlunin sé ekki fullunnin.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp. Ráðið telur meginefni þess til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda styrkveitingarkerfi hins opinbera.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp sem er ætlað að einfalda regluverk erlendrar fjárfestingar og þar af leiðandi auðvelda íslenskum fyrirtækjum að sækja fjármagn erlendis.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar endurmat á virkjunarkostum úr 3. áfanga rammaáætlunar, ráðið tekur ekki efnislega afstöðu til einstakra virkjunarkosta í endurmati verkefnastjórnar en vill þó koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri.
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð Íslands (hér eftir nefnd „samtökin”) hafa tekið til umsagnar ofangreint mál sem birt var á samráðsgátt stjórnvalda 26. febrúar.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp um raforkuviðskipti (Mál nr. S-61/2024) en með því er einkum lagt til að tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum verði lögfestar, kveðið á um fyrirkomulag eftirlits og skilgreiningar á hugtökunum heildsölumarkaður raforku og ...
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp (mál nr. S-52/2024) en samkvæmt því eru markmið þess einkum tvenn. Annars vegar að skilgrein a ábyrgð fjármála og efnahagsráðherra á stefnumótun í upplýsingatæknimálum ríkisins og hins vegar mæl a fyrir um heimildir hans til að ákveða högun þeirra.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform, samkvæmt þeim er ætlunin að skýra tiltekin ákvæði og auka sveigjanleika stofnanafyrirkomulagsins við opinber innkaup.
Umsögn Viðskiptaráðs um áform um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald (kaup og sala þjónustu á milli landa og kílómetragjald) . Mál nr. S-48/2024.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar áform um frumvarp til breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2023 (erlendar fjárfestingar í nýsköpun). Mál nr. S-26/2024.
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind mál um vindorku. Til hagræðis tekur umsögnin til hvoru tveggja draga að stefnu um hagnýtingu vindorku og frumvarps til laga um vindorku. (Mál nr. S-1/2024).
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind mál en ráðið hafði áður skilað inn umsögn við málið á fyrri stigum. Til hagræðis tekur umsögnin til hvoru tveggja draga að sjávarútvegsstefnu og frumvarps til laga um sjávarútveg.