Mikilvægt að frumvarp um LSR nái fram að ganga

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að samræma lífeyriskerfi opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum markaði. Viðskiptaráð fagnar því að loks standi til að stíga þetta skref og telur afar mikilvægt að frumvarpið fái brautargengi í þinginu. Nái það hins vegar ekki fram að ganga kann það að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir ríkissjóð og stöðugleika á vinnumarkaði. Þrátt fyrir verulega fjárfestingu af hálfu ríkissjóðs telur Viðskiptaráð að heildarávinningur breytinganna réttlæti slíkt framlag. Lífeyriskerfi Íslendinga er þegar í fremstu röð og þær breytingar sem frumvarpið felur í sér mun efla það enn frekar.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur m.a. fram:

  • Í skoðanakönnun sem framkvæmd var fyrir Viðskiptaráð töldu 89% svarenda að lífeyrisréttindi launþega ættu að vera sambærileg hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði.
  • Munurinn á réttindum skapar neikvæða hvata gagnvart tilfærslu starfsfólks á milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins. Til að þessir tveir hlutar hagkerfisins styðji sem best hvor við annan er því mikilvægt að starfsfólk geti fært sig á milli þeirra án þess að lífeyrisréttindi breytist.
  • Stjórn LSR og stjórn Brúar hafa boðað hækkun mótframlags launagreiðanda og munu lífeyrisiðgjöld opinberra starfsmanna þá nema samtals allt að 20,8% af heildarlaunum. Fyrirséð er því að markmið um jöfnun lífeyrisréttinda verður enn fjarlægara verði frumvarp þetta ekki samþykkt fyrir lok þessa árs.
  • Til viðbótar við slæm áhrif á stöðu ríkissjóðs vegna hækkunar á mótframlagi lífeyrisiðgjalda mun hækkunin einnig hafa áhrif á almennan vinnumarkað. Forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði koma til endurskoðunar í febrúar 2017. Hækkun á mótframlagi ríkis og sveitarfélaga mun óhjákvæmilega leiða til átaka í tengslum við þá endurskoðun og aukinna krafna um jöfnun lífeyrisréttinda.

Tengt efni

Dulbúinn kaupauki: Sérréttindi opinberra starfsmanna

Opinberir starfsmenn njóta ýmissa starfstengdra réttinda umfram það sem þekkist ...

Mannauðsstefna ríkisins taki mið af almennum vinnumarkaði

Taka þarf mið af samspili við almennan vinnumarkað við endurskoðun á stefnu ...

Takmarka þarf útgjaldavöxt ríkisins

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til breytinga á lögum um opinber ...