Ísland eina EES landið með einkarétt ríkis á póstþjónustu


Í umsögninni kemur meðal annars eftirfarandi fram:

  • Ísland er eina landið innan EES sem ekki hefur afnumið einkarétt ríkisins á sviði póstþjónustu og því tímabært að stíga skrefið til fulls.
  • Stjórnvöld eru hvött til að huga að breyttu eignarhaldi á Íslandspósti hf. enda margvíslegar áskoranir sem fylgja því að starfrækja fyrirtæki í opinberri eigu á samkeppnismarkaði.
  • Viðskiptaráð telur að skilgreina ætti grundvallarmarkmið alþjónustu á póstmarkaði til framtíðar með þeim hætti að umgjörð stuðli að gagnsæi á markaði og virku samkeppnisumhverfi, tryggi viðunandi alþjónustu með lágmarkskostnaði fyrir hið opinbera og stuðli að hagkvæmum rekstri og eignarhaldi á póstmarkaði. Afnám einkaréttar er fyrsta skrefið í átt að því að ofangreindum markmiðum sé náð.

Umsögnina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Ójafn samkeppnisgrundvöllur á fjölmiðlamarkaði

Viðskiptaráð telur brýnt að leiðrétta skakka samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði, ...

Hallalaus fjárlög: Níu hagræðingartillögur Viðskiptaráðs

Í fjárlögum 2025 er áformað að reka ríkissjóð með 41 ma. kr. halla, sem væri ...
8. okt 2024

Fimm skattahækkanir á móti hverri lækkun

Frá áramótum 2022 hafa verið gerðar 46 breytingar á skattkerfinu, þar af hafa ...
31. maí 2023