Frumvarp um ársreikninga að mestu til bóta

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um ársreikninga. Viðskiptaráð telur margt það sem fram kemur í frumvarpinu vera til bóta. Ber þar helst að nefna einföldun regluverks gagnvart smærri fyrirtækjum. Ráðið gerir þó athugasemdir við ákveðna hluta frumvarpsins.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur eftirfarandi fram:

  • Í nýrri stærðarflokkun félaga í frumvarpinu er skilgreining á örfélögum þrengri en skilgreining þeirra í tilskipun Evrópusambandsins sem ætlunin er að innleiða. Að mati Viðskiptaráðs á að miða við sömu stærðarmörk fyrir örfélög á Íslandi og lagt er til með í tilskipuninni. Þannig myndu fleiri félög hér á landi njóta þeirrar einföldunar sem regluverkið býður upp á.
  • Telur Viðskiptaráð rétt að nýtt verði heimild tilskipunarinnar til að undanskilja örfélög frá skyldunni til að skila ársreikningum til opinberrar birtingar.
  • Gerðar eru einnig athugasemdir við þær breytingar sem lagðar eru til á viðurlagaákvæðum ársreikningalaga og leggur ráðið til að þær verði endurskoðaðar.

Tengt efni

Viðspyrna forsenda velferðar

Í ljósi þess hve mikið er í húfi, einkum vegna atvinnuleysis á „biblískum skala“ ...
28. apr 2020

Lög um ársreikninga

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ...
19. okt 2015

Ársreikningar bjargvættir íslenskunnar?

Viðskiptaráð fagnar frumvarpi þess efnis að heimilt verði að vinna ársreikninga ...
13. sep 2018