Afnám gjaldeyrishafta

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna aðgerðaáætlunar stjórnvalda til losunar fjármagnshafta.

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Viðskiptaráð telur að aðgerðaáætlun stjórnvalda sé verulegt framfaraskref fyrir íslenskt efnahagslíf.
  • Þörf er á frekari skýringum stjórnvalda á efnahagslegri þýðingu þeirra nauðasamningsdraga sem nú liggja fyrir.
  • Jafnframt þarf að skýra frekar hvað felst í afléttingu hafta á einstaklinga og fyrirtæki ásamt tímamörkum í þeim efnum.
  • Mikilvægasta verkefni stjórnvalda samhliða afnámi hafta er mótun skýrari langtímastefnu í efnahagsmálum.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Tengt efni

Kolefnismarkaðir: Stígum varlega til jarðar

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að gæta að samkeppnishæfni íslensks ...

Ólympíuleikar í loftslagmálum

"Ísland er ekki lítið land. Ísland er stórasta land í heimi," sagði Dorrit ...
21. ágú 2024

Marel hlaut viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins

Viðurkenning fyrir sjálfbærniskýrslu ársins var veitt í hádeginu við hátíðlega ...
8. jún 2023