Wal van Lierop aðalræðumaður Viðskiptaþings 2017

Wal van Lierop er aðalræðumaður Viðskiptaþings 2017 sem ber yfirskriftina Börn náttúrunnar: framtíð auðlindagreina á Íslandi. Wal er framtaksfjárfestir sem leggur sérstaka áherslu á auðlindageirann. Hann býr yfir fjölbreyttri alþjóðlegri reynslu sem forstjóri, ráðgjafi og fræðimaður. Wal er einn stofnenda Chrysalix sem er kanadískur nýsköpunarsjóður á sviðum nýrra tæknilausna og auðlindanýtingar. Nánar um starfsferil og reynslu Wal má lesa hér.

Opnað hefur verið fyrir skráningar á þingið hér að neðan svo taka megi frá sæti. Nánari dagskrá verður birt bráðlega en þingið stendur yfir frá kl. 13.00-17.00 þann 9. febrúar og fer fram á Hilton Reykjavik Nordica.

#viðskiptaþing

Skráning á Viðskiptaþing 2017


Tengt efni

The Icelandic Economy – H1 2024 

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan ...
30. apr 2024

Vel heppnað Viðskiptaþing

Viðskiptaþing 2025 fór fram fimmtudaginn 13. febrúar undir yfirskriftinni ...

Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti ...
13. feb 2025