Peningamálafundur 6. febrúar: Liggja vegir til lágra vaxta?

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram fimmtudaginn 6. febrúar 2025 frá kl. 8:30 til 10:00 í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík. Léttur morgunverður frá kl. 8:00.

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, flytur meginerindi fundarins. Þá mun Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flytja opnunarávarp. Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður með þátttakendum á fjármálamarkaði.

Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar, útgáfu Peningamála og nýrrar þjóðhagsspár Seðlabanka Íslands degi áður.

Þátttakendur í pallborði verða eftirfarandi:

  • Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður Iceland Seafood International
  • Lárus Welding, rekstrarstjóri Stoða
  • Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans
  • Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu

Miðaverð er 5.900 kr.- og fer miðasala fram á tix.is