HR einn af hundrað bestu ungu háskólum heims

Háskólinn í Reykjavík er einn af hundrað bestu ungu háskólum í heiminum í dag, samkvæmt lista Times Higher Education sem birtur var í gær. Á listanum eru háskólar 50 ára og yngri og er Háskólinn í Reykjavík í 89. sæti á listanum.
Listi Times Higher Education byggir á mati á þrettán lykilþáttum háskólastarfs, svo sem á gæðum kennslu og rannsókna, fjölda tilvitnana í vísindagreinar eftir starfsmenn háskólans, alþjóðlegum tengslum og samstarfi við atvinnulífið. Lista Times Higher Education - Young Universities má finna hér.

Viðskiptaráð Íslands óskar Háskólanum í Reykjavík til hamingju með þennan glæsilega árangur en Menntasjóður Viðskiptaráðs Íslands (áður SVÍV) stóð að stofnun Háskólans í Reykjavík árið 1998. Skólinn var að grunni til byggður á áratuga reynslu og frábærum árangri Verzlunarskóla Íslands. Síðan þá hefur skólinn tekið miklum breytingum, en stærsta skrefið var vafalaust sameining hans við Tækniháskóla Íslands árið 2005. Háskólinn í Reykjavík býður nú upp á vandað og fjölbreytt nám á mörgum sviðum. Skólinn opnar ótal spennandi tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf til að mæta breyttum tímum og styrkir innviði og samkeppnishæfni íslensks hagkerfis.

Tengt efni

Ávarp formanns á Viðskiptaþingi

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp ...

Koma þarf í veg fyrir tafir á orkuöflun og innviðauppbyggingu

Viðskiptaráð hefur veitt umsögn um breytingartillögu um virkjunarleyfi til ...

Sérréttindablinda BHM og BSRB 

Í síðustu viku birti Viðskiptaráð samanburð á starfstengdum réttindum opinberra ...