Skráðu þig á fund um samruna- og samkeppnismál á Íslandi

Viðskiptaráð kynnir nýja úttekt á samrunaeftirliti á Íslandi þriðjudaginn 14. október á Vinnustofu Kjarval, 2. hæð. Fundurinn hefst kl 16. Sérfræðingar á því sviði munu ræða úttektina og umhverfi samkeppnismála í pallborði.

Úttektin sem ber titilinn „Á hlykkjóttum vegi: Samrunaeftirlit á Íslandi“ kemur út samdægurs og fjallar um samrunaeftirlit á Íslandi. Í úttektinni er farið yfir ferli samrunamála á Íslandi, varpað ljósi á galla á samrunaferlinu og jafnframt lagðar fram tillögur til úrbóta.

Að lokinni kynningu á úttekt Viðskiptaráðs fara fram pallborðsumræður með sérfræðingum á sviði samruna- og samkeppnismála:

  • Halldór Brynjar Halldórsson, lögmaður og eigandi á Logos lögmannstofu
  • Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins
  • Páll Gunnar Pálsson, forstjóri samkeppniseftirlitsins

Viðburðurinn er opinn öllum og fer skráningin fram hér: https://vi.is/samkeppnisfundur2025-skraning

Boðið verður upp á léttar veitingar að loknum umræðum.

Tengt efni

Tímabær hækkun veltumarka en frekari úrbóta þörf

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um áformaðar breytingar á samkeppnislögum sem ...

Eflum samkeppni - aukum skilvirkni

Morgunfundur um hvernig efla megi samkeppni og auka skilvirkni á Íslandi. ...

Eflum samkeppni - aukum skilvirkni

Morgunfundur um hvernig efla megi samkeppni og auka skilvirkni á Íslandi. ...