Styrkir á Viðskiptaþingi 2010

Á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs hafa undanfarin ár verið veittir fjórir styrkir til framhaldsnáms erlendis, en tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni og hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.

  1. Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun  þess. Tveir styrkjanna gera kröfu um nám á svið upplýsingatækni.
  2. Skilyrði styrkveitinganna er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi eða öðru sambærilegu námi.
  3. Hver styrkur er að fjáhæð kr. 350.000 og verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi, 17. febrúar 2010.
    Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Viðskiptaráðs, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 29. janúar 2010. Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskírteini, vottorð um skólavist erlendis og ljósmynd af umsækjanda. 

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Viðskiptaráðs, sjá hér.

Tengt efni

Afsakið hlé: umhverfi fjölmiðla á Íslandi 

Umsvif einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hafa minnkað undanfarin ár. Á sama tíma ...

Styrkir til félagasamtaka: hið nýja skúffufé?

Ár hvert hljóta frjáls félagasamtök milljarða króna í styrki frá ráðuneytum og ...

Nauðsynlegt að fyrirtækjum sé bættur skaði vegna sóttvarnaraðgerða

Ljóst er að þörf hefur skapast fyrir stuðning við fyriræki sem var gert að hætta ...
3. feb 2022