Seðlabankinn skerpir á reglum um gjaldeyrismál

Fyrir stuttu var tilkynnt um breytingar á nýsettum gjaldeyrisreglum. Meginbreytingarnar eru þær að ríki og sveitarfélögum hefur verið veitt undanþága frá reglunum sem og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkis og sveitarfélaga, sem starfa samkvæmt sérlögum. Fyrirtæki sem eru aðilar að fjárfestingarsamningum við íslenska ríkið og fyrirtæki sem fengið hafa leyfi iðnaðarráðherra til olíuleitar eru einnig undanþegin reglunum. Þá er skilanefndum sem skipaðar eru á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki veitt undanþága.

Viðskiptaráð ítrekar að ný lög um höft á fjármagnsflutningum eru mjög íþyngjandi fyrir íslenskt efnahagslíf og mun víðtækari en samkomulag ríkisstjórnar og IMF gefur tilefni til. Nýlegar breytingar breyta þar engu um.

Tengt efni

Þörf á skýrari reglum um þróun útgjalda, lækkun skulda og skattheimtu

Viðskiptaráð hefur ásamt Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins tekið ...

Auka þarf samkeppnishæfni landbúnaðar

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ...

Veðjað á rangan hest: Umgjörð veðmálastarfsemi á Íslandi

Þótt veðmálastarfsemi sé sniðinn þröngur stakkur hérlendis veðja fáar þjóðir ...
12. sep 2024